Skilgreiningar á færð á vegum.
![]()
Greiðfært: Hálkulaust yfirborð eða a.m.k. annað hjólfar er autt á hverri
akrein og snjór eða ís á öðrum hlutum vegarins er það lítill að vegfarendum
stafar ekki hætta af.
![]()
Hálkublettir: Hált vegyfirborð sem er hulið ís eða þjöppuðum snjó á allt
að 20% af lengd vegarkaflans.
![]()
Hált: Hált vegyfirborð sem er hulið þurrum ís eða snjó á meira en 20% af
lengd vegarkaflans.
![]()
Flughált: Ísing (glæra) eða vegyfirborð hulið blautum ís eða blautum
þjöppuðum snjó á meira en 20% af lengd vegarkaflans.
![]()
Krap/snjór: Vegyfirborð þakið að hluta eða öllu leyti með allt að 10 cm
þykkum vatnsmettuðum eða lausum/lítið þjöppuðum snjó.
![]()
Þæfingur: Vegyfirborð þakið að hluta eða að öllu leyti með 10-20 cm lausum
eða lítið þjöppuðum snjó og/eða stökum minni háttar sköflum og færð þannig
að ekki telst öruggt færi nema fyrir fólksbifreiðar með drif á öllum hjólum.
![]()
Þungfært: Vegyfirborð þakið af snjó með þykkt meiri en 20 cm og/eða stökum
sköflum og færð þannig að ekki telst öruggt færi nema fyrir jeppa og stærri
ökutæki.
![]()
Ófært: Snjóþyngsli það mikil að ekki telst fært fyrir almenn ökutæki. Þessi
lýsing á einnig við þegar vegur er ófær af öðrum ástæðum eins og
skriðuföllum, vatnsflóðum o.þ.h.
Ásþungi/heildarþungi
10t og 7t/5t/2t: Takmörkun á þunga ökutækja (einkennt með ásþungamerki B18.xx)
Vegavinna: Vegavinna/brúarvinna á vegi eða kafla og þess eðlis að
ástæða er til að vara vegfarendur við og hvetja til aðgæslu (einkennt með
vegavinnumerki A17.11)
Ósléttur
vegur: Vegur eða vegarkafli það ósléttur að ástæða er til að vara
vegfarendur við (einkennt með öldumerki A20.11)
Steinkast: Yfirborð vegar eða vegarkafla með
lausri möl og hætta á steinkasti (einkennt með steinkastmerki A22.11)
Allur akstur bannaður: Vegi eða
vegkafla lokað fyrir allri umferð ökutækja m.a. til að verja hann skemmdum (einkennt
með merkinu allur akstur bannaður B01.11)
Skilgreiningar á aðstæðum.
Óveður:
Vindhraði 19 m/sek (hvassviðri, 37 hnútar) eða meiri eða vindhviður eru meiri en
26 m/sek (51 hnútur).
Snjókoma:
Snjókoma það mikil að vegsýn er skert að einhverju leyti og/eða hætta er á að
færð geti þyngst á næstu klukkustundum.
Skafrenningur:
Laus snjór og vindhraði meiri en 11 m/sek (kaldi, 18 hnútar) og snjófok það mikið
að vegsýn er að einhverju leyti skert og/eða hætta er á að færð geti þyngst á
næstu klukkustundum.
Stórhríð:
Vindhraði 16 m/sek eða meiri (allhvass, 30 hnútar) og ofankoma, erfitt ferðaveður og
mikil hætta á að færð geti þyngst á skömmum tíma.
Éljagangur: Talsverð ofankoma og fjúk getur verið í éljunum en á milli er mun bjartara
veður og betra skyggni.
Þoka: Dimm þoka
með það skertri vegsýn að m.t.t. umferðaröryggis er talin ástæða til að vara
ökumenn við.
Fært
fjallabílum: Þessi skráning er eingöngu notuð þegar búið er að opna
fjallvegi og hliðstæða vegi (t.d. Sprengisandsleið, veg í Laka o.s.frv.) og þá
fyrir þær leiðir þar sem ekki er talið ráðlegt að fara um á fólksbílum.
Ekki
vitað: Ekki vitað um færð.